um okkur
Við erum í búskap
Við erum bændur – það er í blóðinu – og við viljum helst af öllu eiga heima í sveitinni okkar.
Sumarið kemur – kindur og lömb fara í frelsið á fjöllum.
Leiðsögumenn á hreindýraveiðum
Við þekkjum náttúruna, fjöllin og hreindýrin – fjórði ættliður veiði- og leiðsögumanna í þjálfun.
Hjá okkur er oft mikið að gera á haustin, í leiðsögn á hreindýraveiðum, í fláningu og kjötvinnslu – betra að panta tímanlega.
bjóðum upp á gistingu
Það sem byrjaði sem aukabúgrein er að verða aðal vinnan okkar. Gisting fyrir nokkra veiðimenn haustið 2012 hefur smám saman vaxið í heils árs útleigu á nokkrum herbergjum og sumarhúsum – næstum alltaf fullbókað!
Sumarið er ljúft í sveitinni og á haustin er alltaf annasamur tími við hefðbundin bústörf, leiðsögn veiðimanna, og hugsa um gestina okkar.
Víðines í fossárdal
Við erum byrjuð að hlaða upp veggina í Víðinesi og Uppbyggingarsjóður Austurlands styrkir okkur til að halda áfram með verkefnið.
Tóftir húsanna hafa látið á sjá en húsaskipan í Víðinesi er vel þekkt og tóftirnar voru mældar upp 2015. Engar myndir eru til en nokkuð góð lýsing (Hermann Guðmundsson bróðursonur Reimars og kunnugur í Víðinesi).
Svo kemur þak á bæinn og þá verður gaman að sýna gestum hvernig hjón með 17 börn lifðu í litla kotinu.
Víðines gæti hafa litið þannig út – teiknað með aðstoð gerfigreindar.
Hlökkum til að sjá ykkur!