um okkur

Við erum í búskap

Við erum bændur – það er í blóðinu – og við viljum helst af öllu eiga heima í sveitinni okkar.

fjárrekstur heima

Sumarið kemur – kindur og lömb fara í frelsið á fjöllum.

Leiðsögumenn á hreindýraveiðum

 Við þekkjum náttúruna, fjöllin og hreindýrin – fjórði ættliður veiði- og leiðsögumanna í þjálfun.

víðnes veiðimannafjölskylda

Hjá okkur er oft mikið að gera á haustin, í leiðsögn á hreindýraveiðum, í fláningu og kjötvinnslu – betra að panta tímanlega.

bjóðum upp á gistingu

Það sem byrjaði sem aukabúgrein er að verða aðal vinnan okkar.  Gisting fyrir nokkra veiðimenn haustið 2012 hefur smám saman vaxið í heils árs útleigu á nokkrum herbergjum og sumarhúsum – næstum alltaf fullbókað!

lindarbrekka loftmynd 2

Sumarið er ljúft í sveitinni og á haustin er alltaf annasamur tími við hefðbundin bústörf, leiðsögn veiðimanna, og hugsa um gestina okkar.

Víðines í fossárdal

Við erum byrjuð að hlaða upp veggina í Víðinesi og Uppbyggingarsjóður Austurlands styrkir okkur til að halda áfram með verkefnið. 

víðines upphleðsla 2025

Tóftir húsanna hafa látið á sjá en húsaskipan í Víðinesi er vel þekkt og tóftirnar voru mældar upp 2015. Engar myndir eru til en nokkuð góð lýsing (Hermann Guðmundsson bróðursonur Reimars og kunnugur í Víðinesi).

Svo kemur þak á bæinn og þá verður gaman að sýna gestum hvernig hjón með 17 börn lifðu í litla kotinu.

Víðines í Fossárdal - tússteikning með gerfigreind.

Víðines gæti hafa litið þannig út – teiknað með aðstoð gerfigreindar.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Hlutverk

Að skapa heilsárs upplifanir þar sem gestir tengjast sögu, landi og þjóð Íslands – í sátt við náttúruna og í samvinnu við heimamenn.

Sýn

Að vera leiðandi í sjálfbærri og menningarlegri ferðaþjónustu á Austurlandi – þar sem náttúra, menning og fólk myndar heildstæða upplifun sem varir lengi í huga gesta.