litla kotið í dalnum

Víðines í fossárdal

Hér bjuggu Stefanía og Reimar. Fyrst árið 1925, og svo samfellt frá 1927 til 1944. Þau áttu 17 börn sem öll lifðu til fullorðinsára

bændur í ferðaþjónustu

Gisting á Lindarbrekku, upplifun í einstakri náttúru, ferðir um fjöll og dali, leiðsögn á hreindýraveiði eða heimsókn til Trölla í Fálkaásgljúfri.

Á kafi í Austfjarðaþoku eða í glampandi sól – alltaf upplifun.

Einstakar Náttúruperlur

Náttúran er hrein og ósnortin með rjúpum og tófum allt árið. Farfuglar með hreiður og unga á sumrin og oft eru hreindýr á beit í dalnum á veturna. 

Fjöll og tindar, dalurir og firðir - sorfið til og mótað af jöklum á ísöld. Eftir að  Breiðdals- og Múlaeldstöðvarnar lögðu grunninn.

Fossá rennur um dalinn, frá Líkárvatni niður að sjó. Hún er einsog saklaus bæjarlækur á haustdegi en breytist í beljandi fljót í stórrigningum eða þegar snjóa leisir. Í ánni eru yfir 30 fossar af öllum stærðum og gerðum.

Múlafoss er við túnið í Víðinesi - einn fallegasti fossinn í Fossá. Fálkaásgljúfur er rétt innanvið og þar hefur Tröllið vaktað fossana í 1000 ár. Nykurhylsfoss / Sveinstekksfoss er við þjóðveg #1.

Þar sem Austfjarðaþokan á heima leynast einstakar náttúruperlur sem gaman er að skoða, jafnt sumar sem vetur, í niðdimmri Austfjarðaþoku eða í glampandi sólskini.